Verslanir Nýherja
Nýherji rekur fjölbreytt úrval verslana til að koma til móts við þarfir viðskiptavina. Verslanir Nýherja bjóða breitt úrval lausna og búnaða frá heimsþekktum framleiðendum, bæði fyrir fyrirtæki og einstaklinga.
Verslun Nýherja í Borgartúni 37
Verslun Nýherja er ein elsta starfandi raftækjaverslun á landinu. Þar er að finna breitt úrval af hágæðavörum sem fyrirtækið selur, bæði einstaklingum og fyrirtækjum. Verslun Nýherja í Borgartúni er opin frá 9-18 virka daga og 11-15 á laugardögum.
Sony Center í Borgartúni
Í Sony Center í Borgartúni 37 er landsins mesta úrval af Sony rafrækjum á landinu. Sony Center verslanir er að finna um allan heim og hafa það allar að markmiði að skapa fagverslanir með áherslu á Sony vörumerkið þar sem starfsfólkið veitir framúrskarandi ráðgjöf við val á réttu tæki, hvort sem um er að ræða sjónvarp, myndavél, vídeoupptökuvel eða annað sem er í boði í versluninni. Sony Center í Borgartúni er opin frá 9-18 virka daga og 11-15 á laugardögum.
Verslun Nýherja á Akureyri
Í verslun Nýherja á Akureyri má finna breitt úrval af hágæðavörum sem fyrirtækið selur, bæði einstaklingum og fyrirtækjum. Verslun Nýherja að Kaupangi v/Mýrarveg er opin frá 9-18 virka daga og á laugardögum frá 12 - 15.
Netverslun - Þegar þér hentar
Fyrirtækið leggur líka mikla áherslu á að vera með góða netverslun fyrir viðskiptavini sína þar sem hægt er að skoða og versla allar vörur sem Nýherji selur. Frí heimsending er á næsta pósthús. Smelltu þér á netverslun.is.

Þú finnur úrvalið hjá okkur
Far- og borðtölvur frá Lenovo. Prentarar frá Canon og Lexmark.
Stafrænar myndavélar frá Canon og Sony. Myndvarpar frá ASK, Sony, Toshiba og NEC.
Hljóðkerfi frá Bose. Ljósritunarvélar og faxtæki frá Canon. Reiknivélar frá Canon og Facit.
Símbúnaður frá Aastra o.fl. Höfuðheyrnartól frá Plantronics.
Rekstrarvörur, s.s. blek, pappír, segulbönd, geisladiskar, músamottur, skjásíur o.m.fl.
