Tækjaleiga
Viðburðurinn í góðum höndum
Tækjaleiga býður fyrirtækjum og einstaklingum bestu fáanlegu þjónustu þegar skipurleggja á viðburð. Hvort sem um tónleika, ráðstefnur, fundi, sýningar eða veislur er að ræða getur tækjaleigan veitt bæði búnað og tækniþjónustu fyrir verkið. Með eitt stærsta framboð búnaðar og helstu sérfræðinga landsins á sínu sviði verður umgjörðin vel heppnuð.
Leigubúnaður og þjónusta
Hljóðbúnaður: hátalarar, hljóðnemar, mixerar, minni og stærri hljóðkerfi auk alskyns fylgihluta fyrir hljóðbúnað.
Myndsýningarbúnaður: skjáir, skjávarparar, sýningartjöld af öllum stærðum og gerðum, myndavélar, linsur auk allskyns fylgihluta.
Ráðstefnubúnaður: tölvulausnir, prentlausnir, túlkalausnir.
Þegar komið er að því að skipurleggja fundi þar sem þörfin er á túlkaþjónustu og hvort sem að hann fari fram á einu eða fleirri tungumálum er mikilvægt að hafa í huga hverjar tækniþarfirnar eru.
Ljós og sviðsbúnaður: kastarar, dimmerar, spottljós, sviðpallar, sviðvagnar, drapperingar, truss, mótorar, o.fl.
Streymi (webcast): hentar vel fyrir ráðstefnur, fundi, starfsmannfundi, námskeið á netinu, uppgjörsfundir fyrirtækja, sýningar, tónleika, íþróttarviðburði og aðra fræðslu á netinu.
Tækniþjónusta: hljóðstjórn, myndstjórn, ljósastjórn, tæknistjórn, sviðstjórn, upptaka á hljóð og mynd o.fl.
Þekking og reynsla
Innan Tækjaleigu starfa sérfræðingar sem búa yfir mikilli þekkingu og reynslu á þessu sviði. Hafa þeir annast tæknimál á öllum helstu ráðstefnum, sýningum, kynningum og árshátíðum hér á landi um langt árabil. Má þar nefna NATO ráðstefnuna, Norðurlandaráðstefnuna, ráðstefnu Alþjóða Ólympíunefndarinnar og Sjávarútvegssýninguna, árshátíðir fyrirtækja o.fl.
Hafðu samband við tækniráðgjafa Tækjaleigu Nýherja sem bjóða þér faglega ráðgjöf við hönnun, uppsetningu og val á réttu lausnunum fyrir þann viðburð sem þú ætlar að setja upp.
Tækjaleigan er á Köllunarklettsvegi 8 - Sími: 585 3880. Netfang: leiga@nyherji.is



Hafðu samband
Fylltu út formið hér fyrir neðan og okkar ráðgjafar munu hafa samband við þig. Einnig getur þú haft samband með tölvupósti eða í gegnum síma. Kærar þakkir.
- Sími 5697700
- Senda tölvupóst
